Mk - Píur

:* Agnes l Ásrún l ErlaMaría l Erna l Ingibjörg l Ragnheiður l Stína | Sigga:*

11.11.2008 13:59:05 / Erna

BÚSTAD


Hola chicas, Como estas?

Heyrðu, við þurfum að vita hver kemst í bústað helgina 12-14 desember, upp á að panta bústaðinn. Ég hlusta ekki á væl, ef þetta er vinnuhelgi, fáið að skipta. Nógur er tíminn:) Annars hringiði bara inn veikar og fáið borgaðann vinnudag;) .. djók.

Ég treysti samt á það að ég, Erla, Ásrún, Ragnheiður, Agnes og stína förum.

En samt , kommentið og látið vita.

PS. Læt fylgja með myndir af okkur úr síðasta bústað, á leiðinni í pottinn


Þarna eru Ásrún, Agnes, Ragnheiður og Erla


Svo þarna eru Ingibjörg, Stína, sigga, Ég og Hildur.

Vá hvað það er langt síðan, ég og stína meira að segja dökkhærðar þarna

En látið vita.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 13:25:07 / ErlaMaría

Bústaður í Desember:)

Jæja stelpur!

Við Erna erum búnar að vera að velta fyrir okkur hvort það væri ekki gaman að fara í bústað þegar við erum allar búnar í prófunum?! jú auðvitað!!!:)

Síðasti prófdagur er 10.des í FB, þannig að við Ásrún, Erna, Ragnheiður og Stína erum allavega búnar þá. Spurning hvenær þið, ennþá-mkpíur Hildur og Sigga og svo Ingibjörg eruð búnar? ...Og Agnes Dís töfragrís!;)

Erna er búin að vera að skoða einhvern bústað þarna uppí sveit og ætlar að reyna að fá helgina 12.-14. ef allir eru lausir þá?

Eruð þið til í það?:)

kv. ErlaMaría...




» 2 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 14:11:20 / Erna

Upplýsingar um hitting


Staður : Mömmu hennar Ásrúnar
Tími: 7, Síðasta lagi 7.30

Við ætlum að borða saman og er búið að ákveða að hafa þetta bara sem einfaldast og hafa fahitast/tortillas/Pönnukökur. Alveg sama hvað þið kallið það. Það er slatti sem þarf að kaupa fyrir matinn og svo er sterkur leikur að blanda bollu. Ég ætla að taka að mér að versla í matinn og í bollu.(upplýsingar seinna um bollu, stína ætlar að skoða þau mál) og þess vegna ætla ég að biðja ykkur allar að leggja inn á reikninginn minn (sem ég sendi í sms-i) 2000 kr. sem fara í það að kaupa mat, bolluefni og snakk og svoleiðis.

Ég kem með aðeins meiri upplýsingar á fimmtudaginn en endilega leggiði inná mig í síðasta lagi á fimmtudaginn.

Kv. Fernalicius

Ps. annars hefur verið á dagskrá að fara í bústað allar saman, og ég er búin að fá bústað fyrir okkur helgina 21-23 nóvember (rétt fyrir próf) ég þarf að staðfesta komuna, svo ef að þið komist þessa helgi eeendilega látið mig vita svo ég geti talið hversu margar koma)

Geeellllls

legend-ary
of góður leikur, verður klárlega endurtekin
 Misnotkun
Legend

Býst við ykkur öllum svona á laugardaginn (þér líka hildur)



» 13 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 23:45:11 / agnes

fyllerííí djaaaammmdjaaammm

jæja elskurnar við ákváðum að næstu helgi ætluðum við að hittast og djamma saman...
hverjar ykkar komast og Erna ætluðum við ekki að byrja heima hjá þér ?
laugardagurinn næsti klukkan ?? og ætlum við svo í bæinn eða ? endilega látið viðta elskurnar mínar :d
enginr kæró eða vinir eða neitt !! BARA við stelpurnar :D:D:D:D:D

-Agnes og Ragnheiður  sætustustustu !!! ;*;*;*;*;*

Erna, Hildur, Ásrún, Ingibjörg, Stína ??? :D:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 10:49:34 / Erna

Hittingur ?

Yo dawgs !

Ég var að spá hvort að við ættum að hittast á fimmtudaginn milli 8 og 9 heima hjá mömmu upp í mosó ? Kominn tími til ?

Látið mig vita eða segið hvaða tíma og dagur er bestur fyrir ykkur ?


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 03:04:44 / agnes

görls

stelpur minar þetta er ekkert að ganga, engin blogg i manuð eða einhvað tið latið mig bara leiðast a hverju kvöldi eg kiki inna þessa siðu örugglega a hverjum degi til að ga hvort það er ekki einhvað nytt! svo er ekkert sluður og ekki neitt, veit ekkert hvað er i gangi hja ykkur, eg þarf sluður til að halda þessu lífi gangandi! eg meina ekki kann eg að blogga þannig að þið verðið að sjá um þetta elskurnar minar...ÉG VIL SLÚÐUR OG BLOGG



» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 03:12:30 / Ásrún

Let me think about it... dududududu....!

Kom með smá nýtt slúður í aðalvalmyndina, og ætla að taka myndir á nemó og setja þær inn =)

LOVJÚ gæs!

-Ásrún  


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 11:03:30 / Ragnheiður

Bústaður ?!?

Stelpur..

 

Sakna ykkar sætu mínar, en Hildur þú ert auðvitað talin inn í þetta og Sigga þótt þið séuð ekki á myndinni.. 

ef þið viljið fara í bústað þá verðið að segja það oke ?

ætla þá að fara að redda bústað..

hann verður í mars yfir helgi og verðið helst að segja strax hvern / hverja þið ætlið að taka með ..svo ég geti vitað hvað hann á að vera stór og hvort ég eigi að taka tvo eða bara einn ..

endilega látið vita sem fyrst.. elska ykkur sætu mínar ;*

-Ragnheiður


» 14 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 07:28:23 / Ásrún

!!!

NÝ bloggsíða, endilega kíkið!

www.asrun9.bloggar.is

Er samt ekki hætt hér bara prófa =)

Salut!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 17:20:11 / Ásrún

FíntFíntFínt =)

jæja þá gleðilegt nýtt ár allri saman! Gaman gaman nýtt ár =)

Árið 2007 var held ég bara eitt skemmtilegasta ár sem ég hef upplifað býst ég við, yet to come. Kynntist alveg slatta af vinkonum sem að ég veit ég mun þekkja alla mína ævi, þið vitið hverjar þið eruð ástirnar! Síðan var það akureyrarferðin okkar sólrúnar og ásdísar sem var bara æði! Seint gleymt sú ferð get ég lofað ykkur! Laumandi úr skólanum eftir leyfðan tíma á nóttunni alltaf, húkkandi far útum allt haha þuftum EKKERT að labba þarna , og ekki gleyma þynnkunni sem entist í 2 daga hjá mér!! Ef ekki lengur Og nátturulega Írskir dagar, föstudagurinn var mjög venjulegur edrú en laugardagurinn var alveg ógleymarlegur með endalausri drykkju og man síðan lítið, og daginn eftir var ég send heim úr vinnuni því ég var held ég ennþá full hehe.. Síðan var það Costa del sol sem stóð líka uppúr, þessi geðveika ferð sem ég mun aldrey gleyma, Fyrsta ferðin sem maður fór án þess að vera með neinum fullorðnum eða foreldrunum, total freedom. Síðan var það skólinn og að taka þátt í nemendaráðinu sem var mjög gaman og einnig að hætta í mk á miðri önn og fara að vinna fulla vinnu í 2 mánuði, sem lét mig enn meira langa að klára skólann og mennta mig nóg !

Og ég spái að árið 2008 verði jafn gott ef ekki betri en í fyrra. Byrjaði í fb fyrir stuttu á handiðnaðarbraut á textílbraut, aka fatahönnun, og það lofar vel. Finnst skólinn vera mjög fínn og margir kostir við fb þótt ég muni ávalt sakna mk smá. Og planið er síðan að taka önnina með trompi, vinna vinna vinna og minka fatakaupinn (sem eru orðin ansi dýr hver mánaðarmót!) Og síðan finna mér góða vinnu í sumar og fara síðan Til kína til ErluMaríu minnar og liklegast til Phuket sem er á thailandi, og heimsækja ströndina sem var upptökustaður fyrir myndina the beach með fyrrverandi unnusta mínum Leonardo di caprio og einnar james bond myndar.

Þannig fyrir ykkur sem að eru að fara til costa del sol (hef verið þar í 2 vikur btw) og benedorm (farið þangað 2svar) og fleiri aðra sólarlandastaða eins og mæjorka og orlando þá skal ég segja ykkur að ég er ekkert abbó haha. Sérstaklega ekki þegar ég skoða myndir af hótelinu/villunni í thailandi sem við erla of kannski fleiri verða líklegast í thailandi, það er að segja ef ég fæ að ráða einhverju =) :

 Koyao Island Resort & Spa - hótel villawiewtada pool2wiew2 ED$%5E00T2IME6-H 

Og já þetta kostar jafnmikið í viku með flugi frá kína eins og að fara frá ísl til benedorm í viku með hóteli á mann =)

En já ErlaMaría biður að heilsa, hún er núna búin með Fyrstu önnina í háskólanum og er í 5 vikna fríi ásamt Erni nesta skorra og family og có í kína á stað sem eg man ekki alveg hvað heitir en er allanvega borið fram eins og dúnsæng! Og  hún er líklegast ennþá í phuket í thailandi sem er alveg nr 1 á óskastað hjá mér í sumar, og við erlamæja förum þangað ef henni lýst á staðinn núna... =)

Og meðan ég man takk æðislega fyrir kaffihúsaferðina stelpur =) það var æði að slúðra um klám á netinu, heita tannlækna, vinnuna,  lélegar, fyndnar og heimskar megrunaraðferðir, alsheimer sjúklinga, túnfisk og fleira með ykkur elskurnar, gerum þetta alttof sjaldan!

 Í öðrum fréttum fór ég í endajaxlatöku í gær. Var búin að vera skíthrædd í alveg viku því gudda var búin að hræða mig svo hrikalega „þetta er alveg það versta og sársaukafyllsta sem að ég hef lent í!!“ haha en já þetta var sársaukafullt en ég er viss um að ég mun lenda í einhverju verra í gegnum lífsleiðina. Annars þurfti tannlæknirinn minn að kljúfa tönnina og bora hana í tvennt til að koma henni upp því hún óx skökk upp og það var nú ekki þægilegt, hann þurfti að sprauta meiri deyfingu ef mig minnir rétt 3 svar því ég fann svo mikið fyrir þessu en guð hvað ég var ánægð þegar ég sá að hann tók upp töngina og fór að hamast einhvað haha. Þannig þetta tók 2 og hálfann tíma en átti bara að taka einn, og þá var það uppí apótek að versla pakródín og íbúfen, ásamnt sótthreinsandi munnskoli, grysjur og sýklalyf og er núna ennþá bólgin eins og hamstur á hægri kinn hehe.

En ég kveð í bili =)

-Ásrún


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 12:45:45 / Ragnheiður

:)

Takk fyrir gærkvöldið elskurnar mínar :D

Ótrúlega gaman að hitta ykkur, verst að við komumst ekki allar

Ingjibjörg veðurtept í Mosó.. Hildur föst heima að læra og Erla auðvitað í Kína :P Veit ekki með Siggu :P

Ætluðum að fara á kaffi parís í kringlunni en nei það var bara búið að loka þannig við fórum bara á kaffi mílanó.. heldað við höfum nánast alltaf endað þar þegar við ætlum á kaffihús :)

Ótrúlega gaman hjá okkur bara fullt af skemmtilegum upplýsingum sem komu í ljós :P  Langt síðan að maður hefur átt svona ekta "mk" samtal :)

Ásrún auðvitað að missa sig í Ásrúnar mómentum :D hehe elska þig snúlla ;)

Agnes hvernig fýlaðiru síðuna sem Erna sagði þér frá ? ;)

En bara takk æðislega fyrir mig vonandi bara að hinar komist líka næst .. verðum að gera þetta aftur fljótlega :D

Langar samt að við tökum aftur bústað á þetta ..ótrúlega langt síðan að við fórum saman..

-Ragnheiður

\"\"

Ég og Gísli í bústaðnum

Fór í bústað með stelpunum heima og skemmtum við okkur ótrúlega vel.. langar að við stelpurnar förum aftur og kannski minna drama núna heldur en var síðast ;)

\"\"

sætastur :*

\"\"

það var pínu ölvun :P

allaveganna elskurnar mínar endilega segið ef þið eruð til í bústað ...


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 11:12:09 / Ragnheiður

*STELPUR*

STELPUR ..

 

Ég og Erna vorum að tala saman og við erum búnar að ákveða að á miðvikudaginn eða fimmtudaginn ætlum við á kaffihús !:D:D

Hvor dagurinn hentar ykkur betur og hvaða kaffihús viljið þið fara á ?

Svarið sem fyrst ! :D

-Ragnheiður ;)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 06:43:11 / Ásrún

Jólaöl, rommkonfekt, homma strætóar og lfíð ;D

Jæja margt og mikið hefur gerst þessa viku, virtist nú vera miklu lengri en hún var...

Mánudagur: Já hún ÁsdísEva mín varð loksins 17 ára og fékk bílprófið sitt samdags, ótrúlega dugleg aðeins 1 villa í verklega (ólíkt sumum hóst!!) heheh.... já og það var rúntað langt frammí nóttina þangað til það birti, skutlað 4 gaurum fyrir ágæta summu af penge hehe og síðan rúntað með einum frekar veeeel fullum gaur haha ;D

Þriðjudagur: man ekki :P....

Miðvikudagur: Ég tók verklega prófið fárveik og ældi næstum yfir mig þegar ég bakkaði í stæði eeen náði samt. Og var síðan stoppuð af löggunni (útaf engu btw;))og lenti í veseni því ég var ekki með nein persónuskilríki né bráðarbirgðarskirteinið, hehe sekt á leðinni ...

Fimtudagur: Opna ég ekki séð og heyrt og sé alveg gullfallega mynd af engri annari en Agnesi dís okkar á jólaballi sniglana, ölvaðri með kærastanum og hló svo mikið hélt ég myndi ekki lifa það af og kafnaði næstum útaf kvefinu haha =D

Föstudagur: jájá annar dagurinn með prófð og ljótur fokking gulur strætó KLESSIR Á MIG Á FERÐ!!!! Já var á leiðinni í vinnunna og var á vinstri beyjuakrein hjá Borgartúni(þar sem er aðeins ein vinstri akrein) og í miðri beyjunni kemur strætó og keyrir frammfyrir mig í bullandi órétti frá akreininni sem var við hliðiná sem er aðeins fyrir bíla sem ætla að keyra áfram og klessir á mig í leiðinni!!! Já og stór beygla skartar núna brettið og stuðaran á bílinn minn hægra meginn og ljósið farið og ljótitussufokkingógeðslegiandskotanshelvítisdjöfulsinstussuhóru strætóinn náði líka að skrapa fallega fallega hjólkoppinn minn af bílnum mínum. Tjón uppá 100-200 þús kall takk fyrir.... ég í 100% rétti guði sé lof

StuðStuðStuð vika. Hef líka fundið mér nýtt áhugamál að keyra með útvarpið í gangi og syngja hástöfum með ÁN þess að stelpurnar þagga niður í fallega og yndislega söngnum mínum ;) hehe

2 dagar til jóla ótrúlegt en satt, og allar gjafirnar eftir  náttúrulega en það er bara vanalegt ég kaupi þær aldrey fyrren á þorláksmessu =) með pabba gamla.

Ooog er það broadway um áramótin? Eða nasa? Eða heimaparty? Ég bara hef ekki hugmynd hvar ég mun gera, er einhver ein/n heima ;D?

Annars ætla að fara að sofa

Góða nótt elskurnar

-Ásrún


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 15:38:56 / Ragnheiður

<3 Aðeins ..

...vika í jólin :)

 

Hittingurinn okkar fór í rassgat eða e-ð álíka, varð allaveganna ekkert að honum.

 

Jólin eru að koma ! :D get ekki beðið eftir jólunum. Fólk að missa sig í jólastressi svo það er eflaust gaman hjá Ásrúnu, Stínu og Ingibjörgu í vinnunni. Alltaf nóg að gera hjá öllum fyrir jólin.. ótrúlegt fólk virðist alltaf byrja voða snemma að undirbúa jólin en samt eru allir á síðasta snúnig með allt rétt fyrir jól. Veit t.d. um fólk sem er ekki ennþá búið að kaupa gjafirnar, ekki búið að klára allar hreingerningar og allt fyrir jólin. Ég skil ekki svona ég vil alltaf vera búin með allt já alveg nokkrum vikum fyrir jól annars verð ég stressuð :P Hlakka ekkert smá mikið til að fá að opna alla pakkana mína og sjá hvað allir gefa manni og hvað fólki fannst um gjafirnar sínar og svona. Fara í jólaboðin og sjá hvað allir eru fínir og borða góða matinn. Er búin að fá jólafötin mín :D ótrúlega flott finnst mér. Búin að kaupa allar gjafir og pakka inn svo að þær eru bara tilbúnar að láta afhenda sig. Er að vinna þessa viku mánudag, miðvikudag, föstudag,laugadag og sunnudag. Trúi ekki að ég sé að vinna á Þorláksmessu til 10 :( er aldrei að vinna þessa daga um jólin þ.e.a.s. Þorláksmessu, Aðfangadag, Jóladag eða annan í jólum :P ekki heldur Gamlársdag.. þetta eru bara heilagir dagar fyrir mér og ég vinn sko ekki þessa daga. Get samt ekki beðið eftir að vera búin að vinna á Þorláksmessu og komast heim til mín og vakna í hádeginu og fá möndlugrautinn, svo klára allir að ganga frá eftir það og undirbúa jólamatinn, taka á móti gestunum sem koma með pakkana á aðfangadag :D fara svo allir í bað og gera sig sæta og fína, setjast svo niður og borða besta mat í heimi. Mamma gerir klárlega BESTA jólamat sem hægt er að fá ! Stejast svo öll inn í stofu og opna pakkana.. ég á að lesa á kortin þessi jól :D alltaf gaman að eiga svona kósý stund með fjölskyldunni tekur okkur alveg allaveganna 3 klukkutíma að opna alla pakkana :P Borða svo eftir rétt og amma og afi kýkja alltaf yfir til okkar. Fara svo að sofa þegar maður er búinn að skoða allar gjafirnar og vaknar svo morguninn eftir og það eru bara jólaboð jólaboð og fleirri jólaboð :) veit ekki alveg hvernig ég á að fara að þessu það eru svo mörg jólaboð :P 

Á morgunn er svo verið að fara  út að borða með sætu stelpunum úr Þorlákshöfn :D get ekki beðið eftir að hitta ykkur ástirnar mínar :D 

Við Gísli vorum líka að fá kanínu í gær :D litla ljónakanínu og hún er svo lítil bara 1 og hálfs mánaða og hún er svo ótrúlega MJÚK! Ohh elska hana :D 

Ætla nú ekki að hafa þetta lengar ..nennir ef til vill enginn að lesa þetta :P

 

 -Ragnheiður

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 00:27:58 / Ásrún

14 dagar til jóla hohohó!!!

Jæja þá stelpur mínar, og eiginlega bara allar stelpur og konur. Við ættum að vera stolt að vera kvennmenn í dag! Jahá var að lesa um konu er heitir Amanda Lepore sem býr náttúrulega í hinu fagra og skondna landi Bandaríkinn eða USA, land tækifærana.  Hún er rosalega vinsæl í bandaríkjunum í skemmtunariðnaðinum, aðalega í partýstandinu í New york City.

 

Já nema það að hún fæddist nú hann (nafnið er þó ógreinnt og fæðingarár) en hún/hann er 2/4 kani, fjórðungur ítölsk og fjórðungur þýsk (engin furða að grey barnið var áttavilt). Eftir að hafa séð 11 ára gamall þátt í sjónvarpinu um Lýtaraðgerðir fyrir kynskiptinga ákvað hann að það væri hans æðsti draumur og fór að klæða sig í stelpuföt sem valdi miklum osla í skólanum hans. Hann reddaði sér kvennhormónalyf ungur að aldri í gegnum vin sinn en í staðin saumaði hann föt á hann. 15 ára fékk hún sína fyrstu lýtaraðgerð sem var til að laga nefið á sér, frá þáverandi kærasta hennar frítt en hann var lýtarlæknir.  

Þegar hún var 17 ára kynntist hún bókabúðareiganda og þegar hún var orðin náin honum sagðin hún honum að hún væri kynskiptingur en hann var skilningsríkur og bauð henni í fjölskylduna sína sem voru ekkert nema góð við hana og skilningsrík. Hún giftist bókabúðareigandanum á endanum en hræddur um að það myndi fréttast út að hann væri giftur kynskiptingi hélt hann henni sem fanga í hennar eigin húsi í 7 mánuði áður en hún slapp. Hún flutti til New york þar sem hún vann á hárgreiðslustofu en á endanum rakst á klúbb fyrir kynskiptinga þar sem stjarna hennar hóf að rísa á stjörnuhiminin sem hún stendur núna á. í dag er hún ein vinsælasta veislustjóri í new york og partýhaldari.

  

   

Amanda hefur farið í 3 brjóstaaðgerðir, 2 lýtaraðgerðir á augum, Látið lyfta enninu, fengið hárlínuna dregna niður, látið laga augnabrúnabeinið, sílikon í enni, rass og stækkað mjaðmirnar með sílikon og núna nýlegast stækkaði varirnar sínaar og látið BRJÓTA neðstu rifbeinin og ýtt þeim innar

Hugsum um Það! Hvað einn maður gerir til að fá að vera kona sem að við helmingurinn í heiminum pælum bara ekkert í og tökum því sem sjálfsagðan hlut. stolt af kellingunni að láta sitt sanna ljós skína.. :haha:

Já það eru ekki nógu margir svona hugrakkir Nýr slúddari á leiðinni-Ásrún

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Myndir 2006♥